3. september, 2010

Það var sónað frá Abraham á Stóra Kroppi í dag. Af fjórtán hryssum voru allar fengnar nema ein, og þar af ein með tvífyl. Áður höfðu þrjár hryssur verið sónaðar með fyli. Auk þess sinnti hann níu hryssum sem ekki hafa verið sónaðar.
Ekki slæmur árangur hjá tveggja vetra hesti.
3. september, 2010

Jakob og Alur tóku þátt í slaktaumatölti á Íslandsmóti í hestaíþróttum í Hafnarfirði um síðustu helgi. Þeir urðu Íslandsmeistarar með hæstu einkunn sem gefin hefur verið 8.83.
15. ágúst, 2010

Við fórum að skoða Vilmundarsoninn Abraham í dag þar sem hann sinnir hryssum á Stóra Kroppi.
Þessi tveggja vetra foli hefur stækkað mikið í sumar og er mjög þroskaður miðað við aldur.
2. ágúst, 2010

Alur og Jakob gerðu góða ferð á Fákaflug í Skagafirði um helgina. Alur var sýndur í kynbótadómi og stóð þar efstur í 6 vetra flokki með lokaeinkunnina 8.25.
Þar með eru fjórir elstu synir Auðnu frá Höfða komnir í fyrstu verðlaun. Meðaltal byggingar þeirra er 8,36, meðaltal hæfileika 8,37 og meðaltal aðaleinkunna 8,36.
Þeir bræður Alur og Auður eru báðir í Steinsholti og geta tekið á móti hryssum þar.
7. júlí, 2010

Mánudaginn 5. júlí kastaði Auðna brúnni hryssu undan Kappa frá Kommu. Ánægjan er mikil að fá hryssu því hlutföllin í afkvæmahóp hennar voru sex hestar á móti tveimur hryssum.
7. júlí, 2010

Hann Geisli var sýndur í síðustu viku í Víðidalnum. Sýningin tókst vel og hann hækkaði bæði í byggingu og hæfileikum frá í fyrra. Lokatölur eru 8.22 fyrir byggingu og 8.01 fyrir hæfieika. Aðaleinkunn 8.10.
22. júní, 2010


Folöldin eru seint á ferðinni hjá okkur í ár, sem skrifast á fjórðungsmótið. Þó eru hér komin þrjú, bleikstjörnótt hryssa undan Asa og Tinnu frá Útverkum, rauðblesóttur hestur undan Al og Brönu Galdursdóttur og í dag fæddist rauðnösótt hryssa undan Al og Fléttu sem er undan Sóleyju okkar og Loga frá Skarði.
22. júní, 2010

Í gær brunuðum við í Eyjafjörðinn með Asa en hann verður þar í umsjá Kálfagerðishjónanna Huldu og Ágústs. Hægt er að bæta inn á hann fáeinum hryssum, ef einhvern langar í folöld undan þessum sterkættaða og hátt dæmda hesti.
26. maí, 2010

Hann Auður fer daglega í göngutúr með Guðmundi til að þjálfa upp fótinn.

Honum er ekki leyft að sletta úr klaufunum ennþá þótt hann langi mikið til þess.
23. maí, 2010

Síðustu vikur hefur hestasóttin greinst hjá okkur eins og víða annars staðar, og nú eru öll hrossin komin í frí. Engin eru þó alvarlega veik og einungis fá hafa fengið lítilsháttar hósta. Ekkert er hægt að gera annað en bíða eftir að hún gangi yfir, og vona að fylfullu hryssurnar og folöldin þeirra sleppi vel frá henni.