Abraham

Hann Abraham sem er tveggja vetra, er í æfingakennslu hjá tveimur rosknum og ráðsettum, þeim Sóleyju frá Lundum og Freistingu frá Ljótsstöðum. Hann fer síðan í girðingu að Ytra Hólmi í júní og seinna að Stóra Kroppi og er nánast fullt undir hann á báðum stöðum.

Auður

Auður er kominn heim eftir velheppnaða aðgerð þar sem griffilbein var tekið og síðan fór hann í endurhæfingu hjá Faxa hestum, sund og göngubretti. Hann stefnir ekki á Landsmót eða í aðrar keppnir á þessu sumri en ætlar að einbeita sér að því að sinna hryssum. Þessi fallega Orradóttir, Orka frá Miðkoti með gullfallegan Kráksson …

Alur

Hann Alur hefur verið stíga sín fyrstu spor í keppni. Fyrir hálfum mánuði tóku þeir Jakob þátt í slaktaumatölti í meistaradeild VÍS og lentu þar í þriðja sæti í harðri keppni. Á laugardaginn fór svo Torunn með hann i skautahöllina á Svellkaldar konur. Þau enduðu þar í sjöunda sæti í opnum flokki. Ekki slæmt hjá …

Opnun

Laugardaginn 13. febrúar var opið hús hjá okkur í tilefni af því að lokið er breytingum á fjósi í hesthús. Þar höfum við 14 einstaklingsstíur og þrjár sem rúma 2-3 fullorðin hross hver. Um 80 manns heimsóttu okkur og þáðu léttar veitingar. Heiðurshryssurnar Sóley og Auðna komu inn í tilefni dagsins, svo og ungfolarnir ógeltu, …

Veður í grasi

Þessa skemmtilegu mynd sendi okkur Einar á Brúnum í Eyjafirði , en hún er af Auð í landi Grýtu þar sem hann sinnti Norðlenskum hryssum í sumar. Það er ekki hægt að kvarta yfir haganum, hann bókstaflega veður grasið í kvið, enda var fyljunarárangurinn  góður.

Ungfolar

Nokkrir ungir graðfolar eru í uppeldi hjá okkur, meðal þeirra eru bræðurnir undan Auðnu, Abraham fæddur 2008 og Alexander fæddur 2009. Abraham hefur þegar verið ráðstafað sumarið 2010 og 2011 og forsjálir hrossaræktendur hafa pantað Alexander fyrir árið 2011. Frændi þeirra Breki sem er undan Auð og Brönu Galdursdóttur var notaður á Ytra-Hólmi síðastliðið sumar. …